Útdráttur: Með Viðeyjarleið má leysa húsnæðisvandann til frambúðar
Í dag fæst bara einn fyrir tveir tilboð í íbúðakaupum í Reykjavík. Til að fá eina íbúð þarf að borga fyrir tvær: Íbúðina sem þú vilt fá, gamla húsið sem var fyrir og var rifið, félagslegar íbúðir nágranna sem borgin lætur þig borga með í, innviðagjald vegna borgarlínu og jafnvel pálmatré. Hamingjustundin við að flytja inn í sína fyrstu íbúð er farin að verða meira og meira tregablandin. En svona hefur þetta ekki alltaf verið, því miðað við byggingarkostnað hefur íbúðaverð hækkað um 80-90% frá aldamótum. (mynd 1)
Mynd 1. Frá aldamótum hefur fasteignaverð m.t.t. byggingarvísitölu hækkað um 78% fyrir fjölbýli og 90% fyrir einbýli.
Þegar allt er of dýrt fara allir að tapa. Leigjandinn tapar, þegar leigan hækkar, kaupandinn tapar þegar fasteignaverð hækkar og verktakinn tapar þegar fólk hættir að hafa efni á íbúðinni sem hann var að byggja. Af hverju er ekki allt morandi í byggingarkrönum í Reykjavík nú í hæsta fasteignaverði sögunnar? Vilja verktakar ekki græða? Svarið er einfalt: Hækkunin er vegna kostnaðar en ekki vegna gróða.
Byggjum aftur ódýrt
Fyrsta skrefið í að leysa húsnæðisvandann er að átta sig á því að það er ekki hlutverk borgaryfirvalda að ákveða hvar og hversu dýrt borgarar búi. Þvert á móti gegnir borgin þjónusuthlutverki og þarf að sjá til þess að allir geti fundið húsnæði sér við hæfi.
Auka þarf lóðaframboð strax og auðvelda uppbyggingu þar sem ódýrast og fljótlegast er að byggja. Bestu svæðin fyrir stórfellda hraða uppbyggingu eru í landi Keldna og Korpu, stór auð svæði sem með litlu flækjustigi. Þessi svæði þarf að byrja að skipuleggja strax, en meðan á því stendur þarf jafnframt að flýta fyrir uppbyggingu innan skipulagðra hverfa svo hægt er að byrja strax að byggja.
En til að halda lóðaverði niðri til lengri þarf að skoða nýjar leiðir.
Viðeyjarleiðin
Viðeyjarleið er samgöngulausn sem mun breyta borginni til langrar framtíðar. Í henni er Viðey tengd við landi á þremur stöðum, við Laugarnes, við Brimnes og við Gufunes. (Mynd 2)
Mynd 2. Viðeyjarleið mun bylta samgöngum og lóðaframboði í Reykjavík
Hjólað út í Viðey
Tenging Laugarness við Viðey verður gegnum steypt botngöng. Þessi tegund ganga hentar mjög vel fyrir styttri innanbæjar tengingar og lítið mál væri hafa sér hjóla akrein í slíkum göngum, sem mundi búa til alvöru miðbæjartengingu þar sem fólk gæti líka hjólað út í Viðey og notið náttúru og sögu sem þar er.
Sundabraut óþörf með Viðeyjarleið
Tenging Viðeyjar til suðurs við Gufunes væri einföld landfylling því afar grunnt er þarna á milli. Með slíkri tengingu frá Laugarnesi væri í raun kominn fyrsti áfanga Sundabrautar sem myndi leysa umferðarvandamál á Sæbraut og á Miklubraut.
Tvöföldun Reykjavíkur til norðurs
Tenging Viðeyjar til norðurs væri um hefðbundin göng eins og hvalfjarðargöngin en áhrif þessarar tengingar væru jafnvel enn áhugaverðari, því með henni mun stærð Reykjavíkur nánast tvöfaldast þar sem fýsilegt óbyggt byggingarland í borginni verður orðið jafnstórt byggðu borgarlandi. Ferðin úr bænum mun styttast um 20 mínútur og aðeins taka 10 mínútur fyrir íbúar Grundarhverfis að renna niður í miðbæ. Kjalarnesbúar sem ynnu í bænum myndu spara sér 40 mínútur á dag í akstri. Byggð á Kjalarnesi væri orðin nær miðbænum í tíma en þau úthverfi Reykjavíkur sem verið er að byggja í dag og 40-50 km löng óbyggð strandlengja yrði aðgengileg Reykvíkingum þegar Viðeyjarbraut og tengdar framkvæmdir væru komnar. Viðeyjarleið mundi þannig tryggja að um langa framtíð geti allir sem vilja búa í Reykjavík fundið sér heimili við hæfi.
Leysum húsnæðisvandann strax
Húsnæðisvandamál borgarinnar er í dag alvarlegasta samfélagsmein sem Íslendingar glíma við. Tvöföldun húsnæðisverðs veldur því að þúsundir festast í fátæktargildrum á meðan sífellt færri hafa efni á að koma sér þaki yfir höfuðið. Það er löngu kominn tími til að taka á þessum vanda með alvöru lausnum sem duga. Megin ástæðan fyrir framboði Ábyrgrar Framtíðar í borgarstjórnarkosningunum er einmitt að koma með lausnirnar og verður öllum tiltækum ráðum beitt til að tryggja að ástandið verði aftur eðlilegt. Hver veit nema draumahús margra bíði þeirra við sjávarsíðuna á Kjalarnesi?
Mynd 3. Reykjavík séð frá Kjalarnesi
Commenti